Náttúruprjón
Litunarnámskeið
Litunarnámskeið
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Langar þig til að lita þitt eigið garn? Á þessu námskeiði lærir þú að lita garn frá grunni, í rólegu og notalegu umhverfi á vinnustofu Náttúruprjóns í Hafnarfirði.
Við förum yfir grunnatriði litunar, hvernig litir blandast saman og hvernig þú nærð fram mismunandi áferð. Þú litar 2 hespur sem þú tekur svo með þér heim að námskeiði loknu, skolar þær og þurrkar og þá eru þær tilbúnar í næsta spennandi prjónaverkefni.
Viltu lita meira? Hægt er að bæta við og fara í stærra námskeið með 3 hespum (22.500 kr) þegar komið er á staðinn.
Innifalið: Garn, litir, áhöld og kaffi
Lengd: 3 klukkustundir
Staður: Skútahrauni 17c, Hafnarfirði
Fjöldi: Hámarksfjöldi er 6 þátttakendur, svo allir fái góða leiðsögn.
Ertu með hóp? Saumaklúbbar, vinkonuhópar og kvenfélög geta pantað sitt eigið litunarkvöld.
Hafðu með þér: Svuntu, föt sem litur má fara í og svo vatnshelda plastpoka eða fötu sem garnið getur farið heim í blautt og handavinnu til að stytta stundir í biðtíma.
Engin fyrri reynsla er nauðsynleg.
Stéttarfélög: Mörg stéttarfélög endurgreiða hluta af námskeiðsgjaldinu. Kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi. Ef þú þarft reikning, sendu okkur línu og við útbúum hann.
Veldu dagsetningu hér að ofan. Ef þú bókar fyrir fleiri en einn, skrifaðu þá nöfn þátttakenda í athugasemd við pöntunina.
Gjafabréf: Viltu gefa námskeið? Skoðaðu gjafabréfin hér.
Afbókun: Hægt er að afbóka eða færa sig á aðra dagsetningu allt að 2 dögum fyrir námskeið.
Deila
