Litunarkvöld
Komdu með hópinn á litunarkvöld. Ég tek á móti einkahópum, saumaklúbbum, vinkonuhópum og kvenfélögum á vinnustofu Náttúruprjóns í Hafnarfirði. Þú velur kvöldið með mér og hópurinn fær vinnustofuna fyrir sig.
Einnig er hægt að koma, allt að þrjú saman, og lita garn í næstu peysu.
Fjöldi: 3 til 15 manns
Hvenær: þriðjudags- og laugardagskvöld, eftir samkomulagi
Verð: 18.500 kr á mann
Staður: Skútahrauni 17c, Hafnarfirði
Hafðu samband á natturuprjon@natturuprjon.is og segðu mér hvað þú ert með í huga og hversu mörg þið eruð, þá finnum við kvöld sem hentar.
Viltu frekar skrá þig ein(n) á opið námskeið? Sjá Litunarnámskeið á fimmtudögum.
Viltu gefa litunarkvöld? Skoðaðu gjafabréfin.