Viðja var prjónuð á barnabarnið en nafnið á peysuna fékk ég frá seinna nafni hins barnabarnsins, það má víst ekki gera upp á milli :-). Hann notaði þessa peysu ótrúlega mikið.
Viðja er prjónuð úr Highland wool, frá Garni í gangi á Akureyri og held ég hafi ekki prjónað úr yndislegra garni, og ótrúlega margir litir til. Hægt er að velja milli tveggja mynstra í uppskriftinni
Stærðir: 104 (110) 116 (122) 128.
Garn: Katia, merino 100%.
Aðallitur: 150 (150) 150 (200) 200 g.
Litur 2: 100 (150) 150 (200) 200 gr.
Prjónar: nr 4 og 4,5 -5 sokkaprjónar og hringprjónar. 1 kaðlaprjón.
Prjónfesta: 10 sm = 19 l á prjóna nr 4,5.
Góðar leiðbeiningar fylgja, sem henta jafnt fyrir byrjendur og lengra komna.
Í uppskriftinni eru tvö mynstur sem hægt er að velja úr, annarsvega tíglar eða sikksakk.