Náttúruprjón
Hvernig á að prjóna peysu að ofan.
Hvernig á að prjóna peysu að ofan.
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Þetta námskeið mun taka 3 skipti. Fyrsta námskeiðið mun vera þann 20. apríl kl 19:00 að Skútahrauni 17c, aðeins er pláss fyrir 4 svo það er nauðsynlegt að skrá sig.
1) Fitjað upp fyrir kraga. Hvernig auka á út á axlarstykki, hvort sem um er að ræða reglulega útaukningu eða laskermar, og byrjað á mynstri ef við á.
2) Hvernig skipt er upp fyrir ermar og bol og hvernig fitjað er upp með opnu uppfitji undir ermum og byrjað að prjóna bol.
3) Hvernig ermar eru prjónaðar og fellt af.
Þetta námskeið yrði 3 skipti með einhverju millibili og kæmi það í ljós hvað myndi henta, hvenær það byrjaði og hvenær áframhaldandi námskeið yrðu. Einnig væri hægt að leita til mín á milli ef eitthvað kæmi upp sem þyrfti aðstoð við. Gert er ráð fyrir að hvern tími sé allt að 3 tímum en fólk getur farið þegar það telur sig vera komið á rétt ról.
Komið með garn og hringprjóna sem nota á í flíkina. Hringurinn má vera nokkuð stór allt að 80 sm og verður kennt að nota töfralykkju. Einnig get ég lagt til einfalda uppskrift af peysu í einum lit.
Boðið er upp á léttar veitingar.
Einnig mun ég bjóða uppá námskeiðið á ensku.
Deila
