Farðu í vöruupplýsingar
1 af 5

Náttúruprjón

Sólmyrkvi húfa & vettlingar - uppskrift

Sólmyrkvi húfa & vettlingar - uppskrift

Venjulegt verð 940 ISK
Venjulegt verð Söluverð 940 ISK
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Tegund
Tungumál

Tvíbanda vettlingaprjón með tvílitu stroffi. Mynstrið er óreglulegt og breytist í hverri umferð. Löng bönd myndast einungis á fáum stöðum, sem hægt er að festa í þriðju hverri lykkju á bak við. Hafið mynsturlitinn nær ykkur.

Góðar leiðbeiningar ásamt slóðum á skýringamyndbönd fylgja

Búin að gæla við það í einhverja mánuði að búa til húfu og vettlingamynstur í tillefni af Sólmyrkvanunum þann 12. ágúst 2026. Ekkert bólaði á mynsturhugmynd lengi en svo kom þetta allt í einu og er ég bara nokkuð sátt við útlitið og litina í settinu. Þetta sett verður bæði selt sem stakar uppskriftir en einnig í gjafapökkum. Er ekki búin að að gera upp við mig hvort þetta verði tímabundið sett eða verði hægt að fá áfram.

Garn: Náttúruprjóns garn, 85% merinóull og 15% nælon, 100 g / 400 m, eða sambærilegt til að ná prjónfestu.
Prjónar: Sokkaprjónar nr. 3 og 3,5.
Prjónfesta: 32 lykkjur = 10 sm á prjóna nr. 3,5.
Annað: Hjálparband til að merkja þumlalykkjur, prjónamerki.

Húfa:
Stærð
: Dýpt 29 sm, ummál 56 sm.
Aðallitur: Miðnætur blár, 42 g.
Mynsturlitur: Sólmyrkvagulur, 32 g.

Vettlingar:
Stærð
: Lengd 27 sm, ummál 19 sm.
Aðallitur: Miðnætur blár, 42 g.
Mynsturlitur: Sólmyrkvagulur, 32 g.



Skoða allar upplýsingar