Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

Náttúruprjón

Sólmyrkvi, húfa og vettlingar - gjafapakkar

Sólmyrkvi, húfa og vettlingar - gjafapakkar

Venjulegt verð 7.600 ISK
Venjulegt verð Söluverð 7.600 ISK
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Tegund
Tungumál

Gjafapakki með handlituðu garni og uppskrift Náttúruprjóns. Mynstrið er tileinkað sólmyrkvanum þann 12.08.2026.

Búin að gæla við það í einhverja mánuði að búa til húfu og vettlingamynstur í tilefni af sólmyrkvanum. Ekkert bólaði á mynsturhugmynd lengi vel en svo kom þetta allt í einu og þá gengur þetta hratt hjá mér. Í þetta skiptið byrjaði ég á að lita garnið, gula litinn og bjó svo til mynstrið. Ég er nokkuð sátt við mynstrið og finnst það koma vel út, vil einnig benda á að það eru tvö mynstur á handabökunun á vettlingunum sem snúa í sitthvora áttina, einnig getur þú valið um að láta það snúa öðruvísi eða bæði eins, passið þá allavegana upp á að þumallinn lendi ekki sömu megin á báðum vettlingum. Hef ágæta reynslu í því og komið mér upp ágætri reglu svo það gerist ekki of oft, í þessu setti þurfti ég að passa mig þar sem að ég byrjaði á vinstri vettling sem ég geri annars aldrei. Vil einnig taka fram að þetta er uppskrift númer 50 frá því að ég bjó til mína fyrstu uppskrift um miðjann júlí 2019.

Ég myndi ekki bíða með að fá mér gjafapakkann þar sem ekki er víst að hann verði til eftir sólmyrkvann.

Hægt verður að fá 3 pakka eins og venjulega húfu, vettlinga eða húfu & vettlinga pakka.

Hefðbundið tvíbanda húfu og/eða vettlinga prjón með lettneskri fléttu og einföldu stroffi. Mynstrið er óreglulegt. Löng bönd myndast einungis á fáum stöðum, sem hægt er að festa í þriðju hverri lykkju á bak við.

Góðar leiðbeiningar ásamt slóðum á skýringamyndbönd fylgja, prjónar eru ekki innifaldir. Garnið er 85% merinó ull / 15% nælon, yndislegt að prjóna úr.

Prjónar nr 3 og 3,5.

Skoða allar upplýsingar