Farðu í vöruupplýsingar
1 af 6

Náttúruprjón

Norðurljós, húfa og vettlingar - gjafapakkar

Norðurljós, húfa og vettlingar - gjafapakkar

Venjulegt verð 7.325 ISK
Venjulegt verð Söluverð 7.325 ISK
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Tegund
Tungumál

Gjafapakki með handlituðu garni og uppskrift Náttúruprjóns. Mynstrið er tileinkað íslenskri náttúrur.

Tvíbanda húfuprjón með tveimur lettneskum fléttum. Mynstrið er óreglulegt og breytist í hverri umferð, númerið í síðasta reitnum í hverri línu segir til um fjölda lykkja í sama lit. Löng bönd myndast einungis á fáum stöðum, sem hægt er að festa í þriðju hverri lykkju á bak við. Hafið mynsturlitinn nær ykkur.

Ég er ægilegur náttúrupési og finnst allt svo stórkostlegt sem er skapað án okkar aðkomu. Norðurljós og eldgos eru með því magnaðasta sjónarspili sem náttúruöflin bjóða uppá. Þar sem eldfjalla mynstrið er þegar orðið að veruleika var komið að því að ég kæmi með eitt mynstur þar sem ég reyndi að ná þessum ákaflega fallegu, litríku og fjölbreyttu hreyfingum í himinhvolfunum sem eru einkennandi fyrir Ísland.
Þetta var í fyrsta skiptið sem ég byrjaði á að lita garnið og kom uppskriftin svo í kjölfarið þegar ég hafði fundið þann lit sem mér finnst fullkomin fyrir norðurljósin. Núna er ég að ná í skottið á sjálfri mér í hönnun og litun eða litun og hönnun 
😊.

Góðar leiðbeiningar ásamt slóðum á skýringamyndbönd fylgja, prjónar eru ekki innifaldir. Garnið er 85% merinó ull / 15% nýlon, yndislegt að prjóna úr.

Prjónastærðin er 3-3,5.

Skoða allar upplýsingar