Farðu í vöruupplýsingar
1 af 3

Náttúruprjón

Maríutása vettlingauppskrift

Maríutása vettlingauppskrift

Venjulegt verð 940 ISK
Venjulegt verð Söluverð 940 ISK
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Tungumál

Þetta er ein af mínum fyrstu uppskriftum, og finnst mér nöfnin á fyrstu uppskriftunum lýsa mér vel, sem draumóramanneskju sem horfir í skýin og lætur sig dreyma. Fyrstu uppskriftirnar fengu nöfn frá skýjaflokkunum.

Hefðbundnir tvíbandavettlingar með einföldu stroffi. Mynstrið er reglulegt og auðvelt. Löng bönd myndast einungis á fáum stöðum, sem hægt er að festa í þriðju hverri lykkju á bak við.

Þetta er eina uppskriftin mín þar sem ég leyfi prjónaranum að velja hvernig hún mun snúa, oddur, bikar eða allt út á hlið :-).

Stærð: Lengd 26 sm, ummál 18 sm.
Garn: Garn frá Náttúruprjóni 85% merinó ull / 15% nælon, 100 g / 400 m, eða sambærilegt til að ná prjónfestu.
Aðallitur: Blár, 42 g.
Mynsturlitur: Bleikur, 32 g.
Prjónar: Sokkaprjónar nr. 3 og 3,5.
Prjónfesta: 32 lykkjur = 10 sm á prjóna nr. 3,5.
Annað: Hjálparband til að merkja þumlalykkjur, prjónamerki.

Góðar leiðbeiningar fylgja, sem henta jafnt fyrir byrjendur og lengra komna.

Skoða allar upplýsingar