Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

Náttúruprjón

Lukkusteinar, vettlingar - uppskriftir

Lukkusteinar, vettlingar - uppskriftir

Venjulegt verð 940 ISK
Venjulegt verð Söluverð 940 ISK
Útsala Uppselt
Verð með VSK
Tungumál

Hefðbundnir tvíbanda vettlingar með lettneskri fléttu og einföldu stroffi. Mynstrið er óreglulegt. Í kaflanum um prjóntækni er farið nánar í lettnesku fléttuna og einnig hvernig festa á bönd á bak við, ásamt öðru kennsluefni.

Ég fór á Íslendingadaginn í Gimli í ágúst 2022. Við fengum inni í sumarhúsi hjá alveg yndislegri konu, við höfðum aldrei sést áður en vorum eins og vinir til margra ára strax. Þegar ég kom inn í bústaðinn tók ég strax eftir prentarahillu sem var þar og var hún full af litlum steinum, hverjum með sitt útlit. Sagði hún að sem barn leituðu þau að litlum steinvölum með gati í á ströndinni við Winnipegvatn og áttu þeir að boða lukku. Hún átti aldeilis fínt safn af lukkusteinum og var hún líka mjög lukkuleg 😊. Ég ætla að bjóða upp á 2 litaútgáfur af þessu pari, önnur verður ljósbrún (ég sá brúnleitan stein) og hin grá (þar sem hún sá gráa steina). Ég ákvað að þakka fyrir þessa frábæru daga sem við áttum með henni með því að búa til vettlinga með fullt af lukkusteinum. Þetta er jafnframt fyrsta uppskriftin með litun frá mér og ætla ég að láta litina heita Lukkusteinabrúnan og Lukkusteinagráan. Þegar ég sá litinn fyrir mér vildi ég hafa hann eins og skuggann af ljósa litnum, svo mynstrið félli dálítið inn í heildina, eins og lukkusteinar gera, það er ekki alltaf auðvelt að finna þá.

Stærð: Lengd 30 sm, ummál 20 sm.
Garn: Náttúruprjóns handlitað garn, merinó 85% og 15% nælon, 100 g / 400 m.
Aðallitur: Lukkusteinagrár, 42 g.
Mynsturlitur: Ljós, 32 g.
Prjónar: Sokkaprjónar nr. 3 og 3,5.
Prjónfesta: 32 lykkjur = 10 sm á prjóna nr. 3,5.
Annað: Hjálparband til að merkja þumal, prjónamerki.

Skoða allar upplýsingar