Hefðbundnir tvíbanda vettlingar með lettneskri fléttu og einföldu stroffi. Mynstrið er óreglulegt. Í kaflanum í prjóntækni er farið nánar í Lettnesku fléttuna og einnig hvernig festa á bönd á bak við ásamt öðru kennsluefni. Ég fór á Íslendingadaginn í Gimli í ágúst 2022. Við fengum inn í sumarhúsi hjá alveg yndislegri konu, við höfðum aldrei sést áður en vorum eins og vinir til margra ára strax. Fyrst þegarég kom inn í bústaðinn þá tók ég strax eftir prentarahillu sem var þar og var hún full litlum steinum hverjum með sitt útlit. Sagði hún að sem barn leituðu þau að litlum steinvölum með gati í á ströndinni við Winnipegvatn og áttu þeir að boða lukku. Hún átta aldeilis fínt safn að af lukkusteinum og var hún líka mjög lukkuleg . Ég ætla að bjóða upp á 2 tegundir af litum í þetta par, annað verður ljósbrún (ég sá brúnleitan stein) hitt verður grátt (þar sem hún sá gráa steina) Með tímanum mun vinsælli pakkin vinna. Ég ákvað til þakka fyrir þessa frábæru daga sem við áttum með henni með því að búa til vettlinga með fullt af lukkusteinum. Þetta er jafnframt fyrsta uppskriftin sem er með litun frá mér ætla ég að láta litina heita Lukkusteinabrúnan og Lukkusteinagráann. Þegar ég sá litinn fyrir mér sem átt að vera í þessum vettlingum vildi ég hafa hann eins og skuggan af ljósa litnum, vildi að mynstrið félli dálítið inn í heildina, eins og Lukkusteinar gera, þá er ekki alltaf auðvelt að finna þá.
Stærð: Lengd 30 sm, ummál 20 sm.
Garn: Náttúruprjóns handlitað garn, merinó 85% og 15% nylon 100g/400 m.
Aðalitur: Lukkusteinagrár 45 g.
Mynsturlitur: Ljós, 25 g.
Prjónar: Sokkaprjónar nr. 3 og 3,5.
Prjónfesta: 32 lykkjur = 10 sm á prjóna nr. 3,5.
Annað: Hjálparband til að merkja þumal, prjónamerki.