Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

Náttúruprjón

Klósigar, húfa og vettlingar - uppskriftir

Klósigar, húfa og vettlingar - uppskriftir

Venjulegt verð 940 ISK
Venjulegt verð Söluverð 940 ISK
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Tegund
Tungumál

Þetta er ein af þeim uppskriftum sem varð til þegar ég var að teikna eitthvað út í loftið, oftast verða vettlingarnir til fyrst en svo verður húfan til í kjölfarið.

Tvíbanda mynstur með einföldu stroffi. Mynstrið er reglulegt.Góðar leiðbeiningar ásamt slóðum á skýringamyndbönd fylgja:

Garn: Náttúruprjónsgarn, 85% merinó ull og 15% nælon, 100 g/400 m eða sambærilegt til að ná prjónfestu.

Prjónar: Sokkaprjónar nr. 3 og 3,5.
Prjónfesta: 32 lykkjur = 10 sm á prjóna nr 3,5.
Annað: 1 prjónamerki.

Húfa:
Stærð: Dýpt 22 sm, ummál 56 sm.
Aðalitur: Blár 35 g.
Mynsturlitur: Dökk appelsínugulur 30 g.

Vettlingar:
Stærð:
 Lengd 25,5 sm, ummál 18 sm.
Aðalitur: Blár 40 g.
Mynsturlitur: Dökk appelsínugulur 30 g.


Skoða allar upplýsingar