Náttúruprjón
Kambur - hvernig á að byrja að prjóna hana
Kambur - hvernig á að byrja að prjóna hana
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Ég hef prjónað á sléttunni síðan ég var unglingur. Finnst þar af leiðandi ákaflega einfalt að prjóna opnar peysur og alltaf á sléttunni. Ég hef aldrei náð almennilegum tökum á að prjóna brugðið til baka og finnst það líka mjög leiðinlegt. Þegar ég var 17 ára prjónaði ég mér mína fyrstu opnu jakkapeysu sem átti að vera á slétt prjón að utan og brugðið að innan og þá hætti ég ekki fyrr en ég var búin að læra að prjóna slétt til baka. Í dag prjóna ég allt að 3 liti í "hinni" umferðinn.
Núna ætla ég að bjóða upp á námskeið þar sem hægt er að byrja á peysunni á Vinnustofu Náttúruprjóns, einnig vil ég benda á að nokkrir hafa komið og litað garn í peysuna hjá mér fyrst og komið svo aftur og byrjað. Ef komið er að lita garni í peysuna, þá fylgir námskeiðið með. Best er að hafa samband við mig til að finna hentugann tíma. Þegar garn í heila flík er lituð er ekki hægt að taka á móti nema 2 í mesta lagi 3 og þyrfti það að vera 2 kvöldum áður en byrjað er á peysunni, svo garnið nái að þorna.
Næsta námskeið verður laugardaginn, 18. apríl kl 10:00-13:00. Pláss er aðeins fyrir 4 og nauðsynlegt að skrá sig.
Í þessu námskeið ætla ég að hjálpa ykkur með fyrstu skrefin í að prjóna alltaf á sléttunni. Svo að allir njóti sín og fá sem mest út úr námskeiðinu, mun 6 vera hámarksfjöldi og 2 lágmark og varir námskeiðið í allt að 3 tímum. Endilega sendið póst með óskadagsetningu og tíma og ég sé hvernig það hentar.
Endilega komið með prjóna nr ca 5 og ekki sleipt garn, eins og t.d. alpakka eða geitafiðu.
Boðið er uppá léttar veitingar.
Einnig mun ég bjóða uppá námskeiðið á ensku.
Deila
