Skip to product information
1 of 4

Náttúruprjón

Skrúður - jakkapeysa

Skrúður - jakkapeysa

Regular price 1.600 ISK
Regular price Sale price 1.600 ISK
Sale Sold out
Tax included.
Pattern distribution format
Skill level

Skrúður er prjónuð að ofan, fram og til baka. Það er margt sem gerist í fyrstu umferðunum en svo færist röð og regla yfir allt.
Byrjað er á kaðlalista fyrir hálsmálið þar sem lykkjur eru svo sóttar í fyrir bolin, aukið er út á öxlum fyrir bol og er svo aukið út fyrir ermum. Þegar búið er að prjóna bol og ermar er gengið frá peysunni með kaðalistum sem eru prjónaður sér en svo heklaður á bol og ermar. Peysan er með rennilás, og er hægt að kaupa hann í Handprjónasambandinu í Borgartúni þar sem hægt er að mæla peysuna og stytta hann svo hann passi sem best. 

Ég notaði í peysuna, handlitað DK garn frá mér sjálfri og bíð jafnframt upp á að hægt sé að koma á vinnustofuna og lita sjálf/sjálfur í peysuna. Hægt að skoða nánar á natturuprjon.is. Peysan verður ekki persónulegri en það.

Uppskriftin hentar ekki byrjendum. Ég mun þó bjóða upp á aðstoð við að prjóna uppskriftina á laugardagsmorgnum á vinnustofu Náttúruprjóns. og vil einnig benda á spilunarlista á YouTube rás Náttúruprjóns, þar sem er bæði kynningarmyndband á uppskriftinn og svo styttri myndbönd með kennslu á því sem er gert í peysunni skref fyrir skref. Spilunarlistinn Skrúður.

Fannst alveg ótrúlega gaman að búa til þessa uppskrift, mikil vinna lögð í að uppskriftin komist sem best til prjónarans og vona ég að það hafi tekist.  Ég sá eldri mann á flugvelli erlendist í jakkapeysu sem svipaði til þessarar og fór ég strax að móta mynstrið í huganum á leiðinni heim, vil þó taka fram að ég tók ekki mynd af peysunni góðu og var hún mun fíngerðari en þess, en hver vill svo sem prjóna herra peysu á prjóna nr 2,5-3,5.

Stærðir: 1 (2) 3 (4) 5 (6) 7 (8) 9 (10) 11 (12) 13 (14)

Bringa, ummál: 86 (91) 96 (101) 106 (112) 117 (122) 127 (132) 137 (142) 147 (152) sm.

Ummál bringu miðað við lykkjufjölda í viðkomandi stærð: 95 (96) 101 (106) 110 (119) 125 (126) 133 (136) 144 (147) 154 (158) sm.

Garn: Merion Dk, 100 g / 225 m.

Magn: 600 (650) 700 (700) 750 (750) 800 (800) 850 (850) 900 (900) 950 (950).

Prjónar: Sokkaprjónar nr 4 og hringprjónar 80 sm, nr 4 og heklunál nr 4.

Annað: Prjónamerki 10-12 stk, 2 stk kaðlaprjóna, rennilás, eða 8-10 tölur ef hún á að vera hneppt.

Prjónfesta: 21L * 28 umferðir = 10 sm á prjóna nr 4.0.

View full details