Komið þið sæl
Kom frá Sviss í byrjun apríl, brosandi allan hringinn. Það var alveg ótrúlega skemmtilegt að vera seljandi á Swiss Yarn Festival, sé til hvort ég sæki um aftur á næsta ári. Það voru um 75 söluaðilar, fullt af námskeiðum, prjónhorn, gott veður og stólar fyrir utan svo hægt væri að prjóna í sólinni, ákaflega skemmtilegt umhverfi þar sem hægt var að fá sér göngutúr eða bara eitthvað að til að gleðja magann.
Öll umgjörð í kringum þetta var ákaflega góð og hitti ég þarna ágætar systur úr Þingborg, sem voru með námskeið og hitti líka fleiri Íslendinga og einnig einhverja sem vilja verða Íslendingar (flytja til Íslands), held reyndar að það tengist eitthvað íslenska hestinum 😊. Þetta hátið er 17 km frá Zurich svo það er ekki flókið að koma sér þangað, góðar samgöngur og svo sjá staðarhaldarar um að frakta fólk frá lestarstöðinni að hátíðarsvæðinu.
Næst á dagskrá hjá mér er að vera í Rokku Fjarðarkaupum á miðvikudaginn eftir hádegi og fram eftir degi (kl13:30-17:00), hlakka til að sjá sem flesta og ætla ég að vera með megnið af uppskriftunum mínum og flest alla gjafapakkana. Einnig ætla ég að vera með það sem er á prjónunum hjá mér núna og vonast til að ná að klára herrapeysuna Skrúð fyrir Prjónagleðina á Blöndós, en er nú samt ekki viss um að ég nái að klára uppskriftina en hún ætti þá að koma fljótlega.
Í byrjun ágúst mun ég fara til Gimli einu sinni enn og hlakkar mig alltaf meira og meira til að fara þangað eftir því sem ég fer oftar. Búin að eignast mjög góða vini þar og einnig gaman að sjá hvað þetta fólk hugsar vel til Íslands og er stolt af því að eiga ættir sínar að rekja hingað. Í ár verður haldið upp á 150 ára afmæli Íslendingadagsins svo það verða meiri hátíðarhöld en venja er, svo þetta verður mjög skemmtilegt. Við verðum einnig líka fleiri sem förum með vörurnar okkar þangað í ár, svo það verður sannkölluð íslendingastemming og fyrir utan alla gestina sem munu koma frá Íslandi, kór, þjóðbúningafélag og ásamt eflaust fleirum gestu sem ég veit ekki um.