{"product_id":"solmyrkvi-hufa-og-vettlingar-gjafapakkar","title":"Sólmyrkvi, húfa og vettlingar - gjafapakkar","description":"\u003cp\u003eGjafapakki með handlituðu garni og uppskrift Náttúruprjóns. Mynstrið er tileinkað sólmyrkvanum þann 12.08.2026.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBúin að gæla við það í einhverja mánuði að búa til húfu og vettlingamynstur í tilefni af sólmyrkvanum. Ekkert bólaði á mynsturhugmynd lengi vel en svo kom þetta allt í einu og þá gengur þetta hratt hjá mér. Í þetta skiptið byrjaði ég á að lita garnið, gula litinn og bjó svo til mynstrið. Ég er nokkuð sátt við mynstrið og finnst það koma vel út, vil einnig benda á að það eru tvö mynstur á handabökunun á vettlingunum sem snúa í sitthvora áttina, einnig getur þú valið um að láta það snúa öðruvísi eða bæði eins, passið þá allavegana upp á að þumallinn lendi ekki sömu megin á báðum vettlingum. Hef ágæta reynslu í því og komið mér upp ágætri reglu svo það gerist ekki of oft, í þessu setti þurfti ég að passa mig þar sem að ég byrjaði á vinstri vettling sem ég geri annars aldrei. Vil einnig taka fram að þetta er uppskrift númer 50 frá því að ég bjó til mína fyrstu uppskrift um miðjann júlí 2019.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÉg myndi ekki bíða með að fá mér gjafapakkann þar sem ekki er víst að hann verði til eftir sólmyrkvann.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHægt verður að fá 3 pakka eins og venjulega húfu, vettlinga eða húfu \u0026amp; vettlinga pakka.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e\u003c\/strong\u003eHefðbundið tvíbanda húfu og\/eða vettlinga prjón með lettneskri fléttu og einföldu stroffi. Mynstrið er óreglulegt. Löng bönd myndast einungis á fáum stöðum, sem hægt er að festa í þriðju hverri lykkju á bak við.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGóðar leiðbeiningar ásamt slóðum á skýringamyndbönd fylgja, prjónar eru ekki innifaldir. Garnið er 85% merinó ull \/ 15% nælon, yndislegt að prjóna úr.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePrjónar nr 3 og 3,5.\u003c\/p\u003e","brand":"Náttúruprjón","offers":[{"title":"Húfa \/ Íslenska","offer_id":43906451112002,"sku":"333I","price":7600.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Húfa \/ Enska","offer_id":43906451144770,"sku":"333E","price":7600.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Vettlingar \/ Íslenska","offer_id":43906451177538,"sku":"334I","price":7600.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Vettlingar \/ Enska","offer_id":43906451210306,"sku":"334E","price":7600.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Húfa og vettlingar \/ Íslenska","offer_id":43906451243074,"sku":"332I","price":12900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Húfa og vettlingar \/ Enska","offer_id":43906451275842,"sku":"332","price":12900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0558\/6481\/9778\/files\/IMG_2371.jpg?v=1782929947","url":"https:\/\/natturuprjon.is\/products\/solmyrkvi-hufa-og-vettlingar-gjafapakkar","provider":"Náttúruprjón","version":"1.0","type":"link"}