{"product_id":"keiko-barnapeysa","title":"Keikó - barnapeysa","description":"\u003cp\u003ePeysan er prjónuð að ofan og í hring. Byrjað á stroffi í kraga, þar sem fitjað er upp á tvo þræði, svo auðveldara verði að sauma \/ prjóna kragann niður áður en byrjað er á bolnum. Venjuleg regluleg útaukning á axlarstykki ásamt mynstri, og bolur og ermar prjónað slétt að stroffi. Ljósblái liturinn er notaður til að ramma inn peysuna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ mörg ár átti ég kisubræðurna Tígul og Keikó, algerlega yndislegir bræður, hugprúðir og ljúfir kettir. Þessar tvær fyrstu peysur sem ég prjóna úr Fjallalopanum frá Ístex fá þessi skemmtilegu nöfn. Báðar peysurnar eru með mjög svipuð mynstur en útaukningin á axlarstykkinu er mjög ólík og svo er mynstur alla leið niður á hinni peysunni sem fær nafnið Tígull, en ég er ekki búin með þá uppskrift, hún ætti að koma með haustinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærðir:\u003c\/strong\u003e 98 \u003cstrong\u003e(104)\u003c\/strong\u003e 110 \u003cstrong\u003e(116)\u003c\/strong\u003e 122 \u003cstrong\u003e(128)\u003c\/strong\u003e 134 \u003cstrong\u003e(140)\u003c\/strong\u003e.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e Fjallalopi, 100% ull, 50 g \/ 150 m.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eAðallitur:\u003c\/strong\u003e Blár, nr. 3021, 150 \u003cstrong\u003e(150)\u003c\/strong\u003e 200 \u003cstrong\u003e(200)\u003c\/strong\u003e 250 \u003cstrong\u003e(250)\u003c\/strong\u003e 250 \u003cstrong\u003e(300)\u003c\/strong\u003e g.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eLjósblár:\u003c\/strong\u003e Nr. 3022, 50 \u003cstrong\u003e(50)\u003c\/strong\u003e 50 \u003cstrong\u003e(50)\u003c\/strong\u003e 100 \u003cstrong\u003e(100)\u003c\/strong\u003e 100 \u003cstrong\u003e(100)\u003c\/strong\u003e g.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e Nr. 3,5, 4,0 og 4,5, sokkaprjónar og hringprjónar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e 10 sm = 22 L á prjóna nr. 4,0.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eAnnað:\u003c\/strong\u003e Prjónamerki, auka prjónaþræðir fyrir ermar og kraga.\u003c\/p\u003e","brand":"Náttúruprjón","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":41575868006466,"sku":"45I","price":940.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Enska","offer_id":41700609392706,"sku":"45E","price":940.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0558\/6481\/9778\/files\/DSC02486.jpg?v=1739215534","url":"https:\/\/natturuprjon.is\/products\/keiko-barnapeysa","provider":"Náttúruprjón","version":"1.0","type":"link"}