{"product_id":"skrudur-jakkapeysa","title":"Skrúður - jakkapeysa","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eSkrúður er prjónuð að ofan, fram og til baka. Það er margt sem gerist í fyrstu umferðunum en svo færist röð og regla yfir allt.\u003cbr\u003eByrjað er á kaðlalista fyrir hálsmálið þar sem lykkjur eru svo sóttar í fyrir bolin, aukið er út á öxlum fyrir bol og er svo aukið út fyrir ermum. Þegar búið er að prjóna bol og ermar er gengið frá peysunni með kaðalistum sem eru prjónaður sér en svo heklaður á bol og ermar. Peysan er með rennilás, og er hægt að kaupa hann í Handprjónasambandinu í Borgartúni þar sem hægt er að mæla peysuna og stytta hann svo hann passi sem best. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eÉg notaði í peysuna, handlitað DK garn frá mér sjálfri og bíð jafnframt upp á að hægt sé að koma á vinnustofuna og lita sjálf\/sjálfur í peysuna. Hægt að skoða nánar á natturuprjon.is. Peysan verður ekki persónulegri en það.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eUppskriftin hentar ekki byrjendum. Ég mun þó bjóða upp á aðstoð við að prjóna uppskriftina á laugardagsmorgnum á vinnustofu Náttúruprjóns. og vil einnig benda á spilunarlista á YouTube rás Náttúruprjóns, þar sem er bæði kynningarmyndband á uppskriftinn og svo styttri myndbönd með kennslu á því sem er gert í peysunni skref fyrir skref. Spilunarlistinn Skrúður.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eFannst alveg ótrúlega gaman að búa til þessa uppskrift, mikil vinna lögð í að uppskriftin komist sem best til prjónarans og vona ég að það hafi tekist.  Ég sá eldri mann á flugvelli erlendist í jakkapeysu sem svipaði til þessarar og fór ég strax að móta mynstrið í huganum á leiðinni heim, vil þó taka fram að ég tók ekki mynd af peysunni góðu og var hún mun fíngerðari en þess, en hver vill svo sem prjóna herra peysu á prjóna nr 2,5-3,5.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eStærðir:\u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003e 1 \u003cb\u003e(2) \u003c\/b\u003e3 \u003cb\u003e(4) \u003c\/b\u003e5 \u003cb\u003e(6)\u003c\/b\u003e 7 \u003cb\u003e(8)\u003c\/b\u003e 9 \u003cb\u003e(10)\u003c\/b\u003e 11 \u003cb\u003e(12)\u003c\/b\u003e 13 \u003cb\u003e(14)\u003c\/b\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eBringa, ummál:\u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003e 86 \u003cb\u003e(91\u003c\/b\u003e) 96 \u003cb\u003e(101)\u003c\/b\u003e 106 \u003cb\u003e(112)\u003c\/b\u003e 117 \u003cb\u003e(122)\u003c\/b\u003e 127 \u003cb\u003e(132)\u003c\/b\u003e 137 \u003cb\u003e(142)\u003c\/b\u003e 147 \u003cb\u003e(152) \u003c\/b\u003esm.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eUmmál bringu miðað við lykkjufjölda í viðkomandi stærð: \u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003e95 \u003cb\u003e(96\u003c\/b\u003e) 101 \u003cb\u003e(106)\u003c\/b\u003e 110 \u003cb\u003e(119)\u003c\/b\u003e 125 \u003cb\u003e(126)\u003c\/b\u003e 133 \u003cb\u003e(136)\u003c\/b\u003e 144 \u003cb\u003e(147)\u003c\/b\u003e 154 \u003cb\u003e(158) \u003c\/b\u003esm.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eGarn: \u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eMerion Dk, 100 g\u003cb\u003e \u003c\/b\u003e\/ 225 m.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eMagn: \u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003e600\u003cb\u003e (650) \u003c\/b\u003e700\u003cb\u003e (700) \u003c\/b\u003e750\u003cb\u003e (750) \u003c\/b\u003e800\u003cb\u003e (800) \u003c\/b\u003e850\u003cb\u003e (850) \u003c\/b\u003e900\u003cb\u003e (900) \u003c\/b\u003e950\u003cb\u003e (950).\u003c\/b\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003ePrjónar: \u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eSokkaprjónar nr 4 og hringprjónar 80 sm, nr 4 og heklunál nr 4.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eAnnað:\u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003e Prjónamerki 10-12 stk, 2 stk kaðlaprjóna, rennilás, eða 8-10 tölur ef hún á að vera hneppt.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003e 21L * 28 umferðir = 10 sm á prjóna nr 4.0.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cimg style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Náttúruprjón","offers":[{"title":"PDF \/ Intermediate","offer_id":43106137047106,"sku":null,"price":1600.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0558\/6481\/9778\/files\/IMG_8682.jpg?v=1772476051","url":"https:\/\/natturuprjon.is\/en\/products\/skrudur-jakkapeysa","provider":"Náttúruprjón","version":"1.0","type":"link"}